Thursday, October 13, 2011

Einkaþjálfun

Ég verð að segja að ég er stolt af því að þetta er annað bloggið mitt í vikunni. Ég er nefnilega ein af þeim bloggurum sem lætur líða langan, langan, langan og svo ennþá lengri tími á milli blogga.

Ég er að hugsa um að skrá mig í fjarnámi í einkaþjálfaraskóla World Class sem byrjar í apríl næstkomandi. Þetta er ekki nema þriggja mánaða nám sem lætur mig velta því fyrir mér hvort þetta sé ekki eins gott nám og ég vil. Sem dæmi er námið í ÍAK hjá Keili tveggja anna nám, sem gefur manni nógu mikinn tíma til að ná öllu sem þarf að læra. Lúðinn sem ég er, þá missti ég af umsóknartímanum þar. Ég veit hins vegar ekki um neinn sem hefur farið í námið í World Class og ekkert heyrt af því þannig að ef það er einhver sem hefur gert það þá má sá og hinn sami endilega láta mig vita af því. Hugmyndin er sú að vera búin að læra einkaþjálfarann og geta nýtt mér það þegar ég fer suður næsta vetur í sálfræðina svo ég þurfi ekki að vinna meira en það með skóla. Þannig að allir sem hafa áhuga á að komast í einkaþjálfun á næsta ári endilega hafa samband við mig því ég mun vera heimsins besti einkaþjálfari í sögunni, eða svo mun ég allaveganna halda fram.

Talandi um einkaþjálfun, ég er einmitt að fara að byrja í fjarþjálfun, enda veitir ekki af, því ég er pikkföst í sama æfingapakkanum og það þarf að fara að hrista eitthvað upp í honum. Ég byrjaði í átaki í byrjun sumars og það gekk alveg ljómandi vel til að byrja með, missti þrjú kíló eins og skot. Síðan þá hef ég verið í stoppstoppstopp. Formið á líkamanum mínum er vissulega búið að breytast helling, til hins betra en þeir sem æfa vita að það er alveg skelfilega leiðinlegt að standa í stað. Að sjálfsögðu á maður ekki að einblína á vigtina, sérstaklega ekki þar það myndi jaðra við óheilbrigði ef ég myndi missa mikið meira en 3 kg til viðbótar en það er alltaf gaman að sjá árángurinn „svart á hvítu“l. Inn kemur fjarþjálfun...

Allar heilbrigðar tillögur um bætingu teknar til greina.
Kveðja súkkulaðifíkillinn.

2 comments:

  1. Hæ frænka, gaman að rekast á bloggið þitt :) Langaði bara rétt að koma með innlegg þar sem efnið þitt tengist aðeins minni menntun og reynslu. Sem ÍAK gengin manneskja myndi ég að sjálfsögðu mæla með því námi, þar sem þannig færðu besta faglega grunninn, sérstaklega ef þú hyggst starfa sem einkaþjálfari í framtíðinni. World Class skólinn er talsvert styttra nám og ekki eins ítarlegt, en án efa býður hann upp á traustan grunn og jafnvel nóg til að fleyta af stað.

    Hins vegar má ekki gleyma því að það sem fyrst og fremst þarf að vera til staðar hvað einkaþjálfun varðar, finnst mér, er mikill áhugi, velvilji og sjálfsagi. Þetta byggir ekki allt á faglegri þekkingu því að mínu mati eru bestu einkaþjálfararnir þeir sem geta sýnt mestan andlegan stuðning, verið til staðar. Þannig að faglega þekkingin er ekki næg ein og sér, persónan skiptir líka máli og ég efast svo sannarlega ekki um að þú getir orðið góður einkaþjálfari sama hvaða nám þú velur þér, sérstaklega ef þú hefur þegar sálfræðilegan áhuga. :)

    Vona að þetta hafi eitthvað hjálpað, knús

    Anna Sæunn

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir þetta Anna. Ég vissi svosem a námið í ÍAK væri mun viðameira en í World Class. Þetta er hinsvegar eitthvað sem ég vil vera búin með fyrir sálfræðina á næsta ári. Ég veit líka að ég kem til með að nota þetta eitthvað í framtíðinni, hvort sem það verður mikið ea ekki. En ég þakka samt fyrir ráðleggingarnar:)

    ReplyDelete