Friday, November 25, 2011

Bræðrakærleikur jólanna

Jólin eru að nálgast... með hverjum deginum. 
   Fyrst var það laufabrauðið í vinnunni, svo jólaseríurnar í vinnunni, svo jólaseríur hér og þar í gluggum bæjarins, í vikunni skoðaði ég allar lélegu jólamyndirnar á imdb, fór svo í sveitina í dag og gerði jólakleinur með mömmu og pabba og fann uppáhalds jólaskrautið mitt í kassa í sveitinni til að koma með í Naustafjöruna. Það má ekki gleyma að minnast á það að á leiðinni í sveitina og heim aftur hlustaði ég á jólalög og söng með eins og brjálæðingur og skemmti mér konunglega. Ég veit að ég er heldur snemma í því en fyrir jól síðustu ára er ég búin að komast í jólaskapið snemma eða um þetta leyti og alltaf bremsað mig af svo ég komist nú jólaskapið á réttum tíma, eða í kringum jólin. Það hefur aldrei tekist. Jólaskapið hefur alltaf bara komið snemma í smá tíma eða þar til ég loka það af og ekki komið aftur fyrr en að ári. Ég er nokkuð viss um að ég er ekki sú eina sem upplifir þetta svona. Í ár hef ég ákveðið að leyfa mér bara að vera í jólaskapi þó það sé svona snemma. Á morgun ætla ég til dæmis að kaupa jólakort og setja upp jólaseríur og á sunnudaginn ætla ég að baka eins og eina smákökusort. Þetta verður yndislegt. Ég hlakka svo til.
   Eins og ég sagði áðan þá var ég að hlusta á jólalög. Þar á meðal eitt uppáhalds jólalagið mitt;
Do they Know It´s Christmas? með Band Aid. Það fékk mig til að hugsa um það sem ég er að fara að gera eftir góðar 6 vikur. Það sem ég er orðin spennt. Áður var ég eiginlega bara kvíðin og stressuð og ekkert lengur spennt. Hrædd um að fá bara heimþrá og að söknuðurinn myndi eyðileggja það sem ætti að vera einn besta ferð sem ég gæti nokkurn tíma farið í á ævinni. Allt annað gleymdist einhvern veginn. Núna er ég hinsvegar búin að átta mig aftur smá á tilgangnum með ferðinni. Til að gera eitthvað gott. Hljómar klisjugjarnt en þetta er nú bara þannig. Núna er ég líka stolt og ánægð því jólin eru að koma og ég er að fara út að gera það sem mig hefur langað að gera í langanlangan tíma, já nokkur ár. Og ég held að sú staðreynd að jólin eru að koma og þessi bræðrakærleikur sem er innra með okkur um hátíðirnar sé að kveikja þetta ljós hjá mér sem lýsir á réttu ástæðuna fyrir för minni út. Þess vegna ætla ég bara að leyfa mér að vera í þessu jólaskapi mínu snemma.

Núna er ég alsæl. Það er gott.

1 comment:

  1. Va hvad mig langar ad vera ad gera allt sem thu ert ad gera. En thad er gott ad thad er ekki mikid um jolin herna svo eg sakna theirra ekkert svo mikid, ekki enn! Gaman ad lesa bloggid thitt og gangi ther vel uti pia!!

    ReplyDelete